Síðan þar með LOKUÐ... The return of AddiZ !!!Arnór Sindri Sölvason

Já, síðan 17. apríl hefur þessi verið opinn og hefur aðeins verið blogg og eitthvað um mig á þessari síðu en nú er það bara allt búið og er ég að vinna í nýrri síðu og alltaf að bætast meira og meira við inná hana, hún heitir www.blog.central.is/addiz og er þetta þar með endurkoma AddiZ en þegar ég var hér á bloggar.is að þá var ég bara hinn venjulegi strákur sem var skráður undir nafninu Arnór Sindri en eins og ég segi að þá er hann AddiZ kominn aftur með nýja síðu með ennþá meira grín en áður og núna er bara kíkja á hanaHlæjandi... Síðan er þetta bloggar.is kerfi ekki eins gott og maður hélt í byrjun en reyndar var blog.central.is líka í geðveikum vandræðum, alltaf að koma villur og maður þurfti að borga fyrir aukahlutina og þannig fór ég á bloggar.is en nú þegar Einar vinur minn fór að skipta aftur yfir í blog.central þá var bara hætt að borga fyrir aukahlutina engar villur og komið fullt af aukahlutum þannig að þetta er alveg hárétti tíminn til að skiptaSvalur... Þannig að núna sjáumst við bara aftur á nýrri síðu...

Kveðja Arnór Sindri

Til Hamingju Með Afmælið Mamma !!!Arnór Sindri Sölvason

Það er núna rúmlega hálftími síðan ég vaknaði og byrjaði dagurinn á því að vekja mömmu því hún á 34 ára afmæli í dag, Til hamingju með afmæliðHlæjandi... Ég og mamma ætlum svo í messu í Keflavíkurkirkju klukkan 11:00 og vona bara að ég sofni ekki því ég dáldið þreyttur núna, en þetta er bara sem ég þarf að gera þegar maður er að fara fermastÓákveðinn... Það verður svo Afmæliskaffi hjá mömmu í dag þar sem fjölskyldan kemur og verða einhverjar skúffukökur og vöfflur með sírópi og rjóma maðurUllandi... Svo er bara Dilana að koma til Íslands að spila með ,,Á móti Sól" og ætlar Lilja frænka að reyna að redda sér miðum hjá SævariSvalur... Það er komin nú könnun í gang um Spaugstofuna en talandi um Spaugstofuna þá var bara mjög fínn þáttur í gær með Ladda sem gestaleikara og notuðu þeir hann dáldið mikið sem Skrámur og svona, fyrir þá sem sáu ekki þáttinn í gær geta kíkt á www.ruv.is eða bara sjá hana endursýnda á Rúv eða kannski hefur bara einhver kunningi tekið hana upp, þetta eru svona þessir helstu möguleikarGlottandi... En ég þarf svona bráðum að fara gera mig kláran fyrir messu þannig að við verðum bara í bandiHlæjandi...

Kveðja Arnór Sindri

Leiðindar Lukas vann þetta bara ...Arnór Sindri Sölvason

Afsakið að ég sé ekki búinn að vera að blogga upp á síðkastið en nú kemur að þvíHlæjandi... Ljósanóttinn var ótrúlega skemmtileg og barðist ég við litla brósa á svona, veit ekki, maður átti svona að standa á svona palli og vera með svona eins og lóð bara með mjúkum púðum á báðum endum og vann ég hann svona 5-0 eða eitthvað, reyndi samt ekkert á mig, þetta var kannski bara alltof þungt fyrir AndraÓákveðinn... Allavega þá fór ég með mömmu, pabba, afa og ömmu með systkinunum á bryggjusönginn með Árna Johnsen eða hvernig sem það er skrifað og var það bara mjög gaman, fékk svona blikkandi flautu og var hún frekar pirrandiÖskrandi... Og svo var þessi snilldar flugeldasýningu og ég bara man ekki eftir betri sýningu, þvílík snilld... Og í gær var lokaþáttur Rockstar Supernova og var hann svona ágætur, klukkutími fór í upprifjun og svo varð Magni fjórði og eftir það hélt ég með Toby en þá datt hann út þannig að ég hélt með Dilönu þegar tveir voru eftir, hún og Lukas, en þá vann Lukas þetta bara og þegar hann fór að syngja með þeim tvö lög að þá heyrði maður hvað hann söng lögin miklu verr en Toby og Magni, enda völdu Supernova þá til að syngja lögin fyrir nokkrum vikum... Enn eftir þetta þá er manni nokkuð sama um þetta, Magni náði langt og núna er bara spennandi hvað hann gerir þegar hann kemur heim, hvort að hann heldur áfram með Á móti sól eða fær einhverja samninga frá öðrum hljómsveitum og svona þannig að það verður spennandiSvalur... Svo þarf Supernova að skifta um nafn að því að önnur hljómsveit heitir það þannig að þegar þeir eru búnir að skifta um nafn að þá þekkir maður þetta band ekkert, svo að þeir eru bara í tómu tjóniUllandi... Og á morgun fer ég heim á Selfoss að fara í afmæli hjá Einsa vini mínum þar og mun ég gista á Selfossi um helgina, stórleikur í Enska boltanum og svona... En núna held ég að ég fari læra, enda búinn að blogga dáldið mikiðÞögull sem gröfin... Sjáumst og verðum í bandiHlæjandi...

Kveðja Arnór Sindri

Mikið búið að gerast !Arnór Sindri Sölvason

Afsakið að ég sé ekki búinn að vera að skrifa en allavega það sem gerðist fyrst frá því að ég byrjaði ekki að skrifa er það að ég var svona æfingu örugglega fyrir viku eða eitthvað, allavega þá var ég í þvílíku stuði á æfingu og ég var í vörn sko, og svo var einn með boltann á kentinum og ég svona hljóp fram fyrir hann og hann sendi á mig og ég hljóp upp kantinn og svo senti ég boltann á mann sem var alveg í horninu og ég fékk boltann aftur og hitti hann ekki alveg enn hann fór alveg í samskeitin marSvalur... Svo er skólinn byrjaður og bara á öðrum degi var ég kominn með svona 10 vini eða eitthvað og gengur bara vel í honum, í góðum bekk og svona... Svo er ég að fara í afmæli á föstudaginn hjá Stebba vini mínum (einn af þeimÞögull sem gröfin) og verður það örugglega gaman... Svo er maður búinn að kaupa rosa pílur mar, ekta, og þær eru svona rauðar með rauðum álleggjum og allt og ég kalla mig MR. REDGlottandi... Svo á að setja ljósanóttina og er ég og Andri búnir að læra eitthvað lag um það og svona og mér skilst að það eigi að sleppa einhverjum 2500 blöðrum, ég sem er ekki hrifin að blöðrum en þetta verður örugglega flott... Mamma mín og Kristrún frá Akureyri voru að vaka hér um nóttina að kjósa Magna í Rockstar og stóð hann sig mjög (sá hann á kvikmynd.is)... Ég fæ svo að vaka í kvöld (ligga ligga lá) og fylgjast með Magna í úrslita þættinum og verður það ábyggilega spennandi... Jæja ætli þetta sé ekki orðið gott í bili, verðum í bandi og svo er bara um að gera að kíkja á LjósanóttHlæjandi... Sjáumst...

Kveðja Arnór Sindri

Byrjaður að æfa hjá Keflavík !!!Arnór Sindri Sölvason

Jebb, ég er byrjaður að æfa með Keflavík og er þetta fyrsta æfingin mín í mánuðHissa... Þetta var mjög erfið æfing og vorum við á fullu í 2 tíma og er ég með harðsperrur eftir æfinguna (veit ekki hvernig það er skrifað)... En ég er alltaf á Selfossi nærrum því sem er gott því stundum er ekkert að gera hér og maður talar ekkert við neinn á æfingu og þegar maður kemur á Selfoss þá getur maður hitt vini sína, farið í pottinn, pílukast og bara skemmt sér með öllum kunningjumHlæjandi... Ég fer svo aftur á sunnudaginn vegna 59 ára afmæli ömmu minnar og verður það mjög gamanGlottandi... Svo núna er maður bara slakur hérna heima og erum að fara í skógarferð í flotta skóginn sem við kíktum á um daginn með nesti og svona og svo klukkan hálf fimm er æfing hjá mér og vona að hún verði ekki eins löng og í gærUllandi... Svo er Ísland - Spánn klukkan átta og var ég mjög ánægður þegar ég sá að hann væri sýndur á stöð 1 því ég er ekki með SÝN og svo er hann ekki sýndur á stöðvunum sem er svosem ekkert skrítiðÞögull sem gröfin... Og svo að lokum er Rockstar: Supernova klukkan eitt og ætli maður verði ekki að fylgjast með því með mömmu... Magni á víst að syngja ,,Starman" eftir David Bowie og verður það fróðlekt en ég verð að fara núna í þessa skógarferð og svo æfingin, úff maður, og við sjáumst síðarSvalur

Kveðja Arnór Sindri

p.s. Það er frábært veður hérna í Keflavíkinni.

Jói kom í heimsókn !!!Arnór Sindri Sölvason

Yes, minn fyrsti gestur kom á fimmtudaginn og var það hann Jói vinur minnBrosandi... Við ætluðum að fara í bíó en þá var hann búinn að fara á myndina sem var í bíó og það asnalega var að það var eina myndin sem var verið að sýna og hét hún Pirates of the Caribbean 2Óákveðinn... Þannig að við tókum bara mynd á leigu sem hét The Ringer og fannst okkur hún vera sjúklega fyndin og var hún um mann sem ætlaði að svindla á Ólympíuleika þroskaheftra til þess að fá peninga til þess að lækna mann sem missti fingurnaUllandi... Allavega svo einn daginn fórum við öll í bláa lónið eins og flestir vita og gat maður varla hreift sig fyrir túristum... Við fórum svo í þennan fína ,,danska" skóg sem var þarna rétt hjá Grindavík og fundum við að ég held, engar kanínur sem áttu víst að vera þarnaBrosandi... Síðan skutluðum við Jóa heim og tjaldvagninum sem við notuðum í ferðalaginu okkar og í leiðinni svaf ég hjá ömmu og afa... Þar gerðum við margt skemmtilegt eins og að fara í pottinn og fara í pílukastskeppni sem ég tapaði á fyrsta degi vegna lélegrar tækni en svo bætti ég mig verulega daginn eftir og vann Palla frænda 5-1, 5-2 og svo aftur 5-1 og þá gafst hann upp en hann var reyndar eitthvað tognaður í vöðva en samt, ég vann hannÞögull sem gröfin... Ég keppti svo við Helga og það var sko spennandi, ég byrjaði á því að vinna fyrstu lotunni, hann vann svo aðra lotunni og svo var það úrslitalotan þar sem hann bar sigur á hólmi í ansi spennandi lotu, hann endaði þetta með stæl með því að hitta bara akkurat í miðjuna og ég bara ætlaði ekki að trúa þvíHissa... Og nú er ég bara slakur hérna heima að bíða eftir Rockstar SupernovaÞögull sem gröfin... Jæja þetta ætti að vera gott í bili, Sjáumst...

Kveðja Arnór Sindri

Í FLÍSPEYSU á fyrstu æfingunni !!!Arnór Sindri Sölvason

Ég vaknaði klukkan 09:30 í morgun, fékk mér morgunmat fór í sturtu og í tölvunni og svona og síðan ætlaði að fara að skrifa undir þetta félagskipta blað en þá sagði þjálfarinn mér bara að fara að æfa með hinum strákunum og ég í útiskónum í þykkri flíspeysu og öllu svörtuUllandi... Þetta var létt æfing en ég svitnaði samt eins og hundur og kláraði einn Powerade á 3 mínútum eða eitthvaðSvalur... Síðan er maður bara að slappa af hérna og ætla að fara í sturtu á eftir, eftir þessa rosa æfingu... Það er að koma hérna rosa sól með dálítið af skýjum og svona... En við sjáumst í rosa stuðiHlæjandi...

Kveðja Arnór Sindri

HM búið, ég búinn að flytja og netið er komið !!!Arnór Sindri Sölvason

Ííííííííííííííhhhaaaaaaaaaaaaaaa!... Loksins, loksins fer ég að skrifaHlæjandi... Ég er búinn að vera að íhuga að hætta blogga af því ég var kominn með leið á því en þegar ég var fluttur og maður var ekki búinn að fara á netið lengi þá bara er maður byrjaður að skrifa á fullu liggjandi í rúminu mínuSvalur... Jæja, núna er HM búið eftir að hafa verið í gangi í mánuð og þið takið sjálfsagt eftir því að það var aðeins eitt sem ég hafði rétt fyrir mér í þessari spá og það var akkurat það sem kom mér mest á óvart og það var auðvitað það að Frakkar lentu í 2. sætiGráðugur... Og eins og kom fram hér fyrr í fréttinni þá er ég búinn að flytja og það í Bítlabæinn Keflavík og er það bara mjög fínt, þetta er alveg rosalegt hús maður, ég er alveg útaf fyrir mig með sér klósett og svo er rosa arinn í stofunni sem er 80 fermetrar (þar að segja stofan)... Ég var að fá að vita æfingatímana hjá Keflavík í gær í boltanum og ég er víst orðinn það gamall að það þarf að hafa félagaskipti sem þýðir að einn stjórnarformaður hér í Keflavík þarf að skrifa undir og einn úr Selfossi og síðan er þetta faxað til KSÍ maðurSvalur... Það var veisla hjá Andra brósa í dag en hann varð 8 ára fyrir 2 dögum og komu fullt af gestum hingað í rosa tertur, gos og læti... Hann fékk Playstation 2 tölvu frá mömmu og pabba og svo gáfum ég og Herdís honum ,,Cars" leikinn í Playstation auðvitaðHlæjandi... Jæja núna er maður að fara með ömmu og afa í Stekkholti til Selfossar og við sjáumst...

Kveðja Arnór Sindri

p.s. Til Hamingju með afmælið AndriGlottandi

Spáin Mín Fyrir HM: 1.Sæti !Arnór Sindri Sölvason

Það er komið að spánni minni fyrir HM og er komið að heimsmeistara sætinu eða þar að segja 1. sætiHlæjandi... Þessi spá ætti nú ekki að koma mörgum á óvart en það eru heimsmeistararnir sjálfir frá því 2002 sem ég spái sigri og eru það auðvitað Brasilíu menn sem ég er að tala um...

Þjálfarinn: Carlos Alberto Perreira er þjálfarinn sem tryggði Brasilíu mönnum heimsmeistara titilinn árið 1994. Hann er fæddur þann 27. febrúar árið 1943. Hann tók við af Luiz Felipe Scolari sem nú er tekinn við Portúgal.

Þeir hafa tekið þátt í heil 17 skipti og hafa orðið 5 sinnum heimsmeistarar og enginn þjóð hefur tekið þátt eða unnið jafnoft.

Styrkleikar: Það er eiginlega sama hvernig liðið er að þá eru þeir alltaf sterkir. Þeir gætu notað varaliðið sitt og samt náð langt.

Veikleikar: Í sjálfum sér þá hafa þeir varla veikleika. Reyndar geta sendingarnar verið galli hjá liðinu og eru kannski dáldið mikið í einspilinu.

Brasilía er í Suður Ameríku og búa um 182 milljónir í landinu. Þeir eru í 1. sæti á heimslista FIFA og nú er að sjá hvort að spáinn rætist.

Ég er búinn að spá Þýskalandi og Argentínu 4. -og 5. sæti á HM en ég mun ekki gera neinn fróðleik um þau lönd.

Spá Arnórs

1. Brasilía
2. Frakkland
3. England
4. Þýskaland
5. Argentína

Kveðja Arnór Sindri

Spáin Mín Fyrir HM: 2.Sæti !Arnór Sindri Sölvason

Afsakið biðina eftir að sjá spánna mína fyrir HM en það er mál með vexti að ég týndi HM blaðinu mínu í nokkra daga en svo lánaði góðhjartaður frændi minn blaðið þannig að nú get ég farið að sýna ykkur spánna mínaBrosandi.

  Liðið sem ég tel að muni lenda í 2.sæti á HM er liðið sem valdi flestum miklum vonbrigðum á seinasta heimsmeistamóti þegar það komst ekki upp úr riðlinum sínum og er ég auðvitað að tala um Frakkland. Þessi spá kemur vegna þess að ég mun halda með Frökkum á mótinu eins og ég gerði á seinasta móti líka en það er nú bara af því ég er 1/64 franskurÞögull sem gröfin. Nú er Zenedine Zidane að spila sýnu síðustu leiki á ferlinum og verður fyrirliðinn í liðinu og nú er að sjá hvort að hinn gamli góði snillingur muni sýna gamla og góða takta.

Þjálfarinn: Frakkar hafa verið að skipta um þjálfara reglulega vegna vonbrigða sem þeir hafa valdið á seinustu mótum. Núverandi þjálfari heitir Raymond Domenech og tók við af Jacques Santini árið 2004. Hann er fæddur árið 1952 þann 24. janúar.

Þeir hafa tekið 11 sinnum þátt á HM og hafa unnið einu sinni og það var árið 1998 þegar þeir lögðu Brasilíu menn á heimavelli.

Styrkleikar: Sóknin hjá þeim er örugglega styrkleikinn í liðinu og eru með menn á borð við David Trezeguet, Louis Saha, Djibril Cissé sem er búinn að vera skora fullt með Frökkum og svo er það Thierry Henry sem er algjör lykilmaður í liðinu.

Veikleikar: Þeir eru með frekar gamla miðju og eru þeir með menn eins og Wiltord (32 ára), Vieira (30 ára), Makalele (33 ára) og svo Zidane (34 ára) sem er að fara hætta. Svo eru þeir búnir að valda miklum vonbrigðum á síðustu stórmótum og nú er að sjá hvað þeir munu gera í þetta sinn.

Frakkland
er í Evrópu og búa 60,2 milljónir manna þar. Þeir eru í 8. sæti á heimslista FIFA.

Spá Arnórs

1. ?
2. Frakkland
3. England
4. ?
5. ?

Kveðja Arnór Sindri

Leit

Auglýsing

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...