Byrjaður að æfa hjá Keflavík !!!Arnór Sindri Sölvason

Jebb, ég er byrjaður að æfa með Keflavík og er þetta fyrsta æfingin mín í mánuðHissa... Þetta var mjög erfið æfing og vorum við á fullu í 2 tíma og er ég með harðsperrur eftir æfinguna (veit ekki hvernig það er skrifað)... En ég er alltaf á Selfossi nærrum því sem er gott því stundum er ekkert að gera hér og maður talar ekkert við neinn á æfingu og þegar maður kemur á Selfoss þá getur maður hitt vini sína, farið í pottinn, pílukast og bara skemmt sér með öllum kunningjumHlæjandi... Ég fer svo aftur á sunnudaginn vegna 59 ára afmæli ömmu minnar og verður það mjög gamanGlottandi... Svo núna er maður bara slakur hérna heima og erum að fara í skógarferð í flotta skóginn sem við kíktum á um daginn með nesti og svona og svo klukkan hálf fimm er æfing hjá mér og vona að hún verði ekki eins löng og í gærUllandi... Svo er Ísland - Spánn klukkan átta og var ég mjög ánægður þegar ég sá að hann væri sýndur á stöð 1 því ég er ekki með SÝN og svo er hann ekki sýndur á stöðvunum sem er svosem ekkert skrítiðÞögull sem gröfin... Og svo að lokum er Rockstar: Supernova klukkan eitt og ætli maður verði ekki að fylgjast með því með mömmu... Magni á víst að syngja ,,Starman" eftir David Bowie og verður það fróðlekt en ég verð að fara núna í þessa skógarferð og svo æfingin, úff maður, og við sjáumst síðarSvalur

Kveðja Arnór Sindri

p.s. Það er frábært veður hérna í Keflavíkinni.

Athugasemdir

1
Palli G. skrifar:
Sæl frændi já það er tekið á því,í Ceflavík fotbol club,ps ekkert Celfoss gauf ha ha en vitu til þetta buð skilar sér vittu til,
Ps kveðja Palli Frændi.
16. ágúst 2006 klukkan 04:42
2
Lilja frænka skrifar:
Hæ Arnór minn ;-)
Vonandi gekk fyrsti leikurinn þinn með Keflavík vel :-) Þú átt eftir að kynnast
strákunum í boltanum, það kemur allt saman ;-)
Bið að heilsa \"gamla settinu\" kv. úr Furó
18. ágúst 2006 klukkan 06:12

Skrifa athugasemd

Leit

Auglýsing

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...