Spáin Mín Fyrir HM: 3.Sæti !Arnór Sindri Sölvason

Liðið sem ég spái 3. sæti á HM í knattspyrnu er EnglandHlæjandi... Ég var að enda við að horfa á vináttuleik milli Englands og Jamaíku og fór hann 6-0 fyrir Englandi og er stærsti sigur Englands undir stjórn Sven-Göran Eriksson sem er að fara hætta með England eftir HM og tekur aðstoðarþjálfarinn Steve Mclaren við... Hér fyrir neðan má sjá allskonar fróðleik um England:

Þjálfarinn: heitir Sven-Göran Eriksson og er fæddur þann 5. Febrúar árið 1948 og kemur frá Svíþjóð. Hann hefur þjálfað England frá því árið 2001 og er nú kominn tími til að hætta eftir HM og mun þá Steve Mclaren taka við eins og kemur fram hérna fyrir ofan.

Þeir hafa tekið 11 sinnum þátt á HM enn hafa unnið aðeins einu sinni og það var árið 1966 fyrir 40 árum og eru flestir Englendingar á því að þeir munu vinna í ár og hafa tileinkað varabúningnum sínum árinu sem þeir unnu meira að segja!

Styrkleikar: Þeir eru án efa með eina sterkustu vörn heims í dag og er með menn á borð við John Terry, Rio Ferdinand, Jaime Carragher, Sol Campbell og fleiri. Sóknin er svo ekki síðri með Michael Owen, Peter Crouch og nú er Jermaine Defoe að koma með í hópinn og er vonast að þeir haldist heilir því Wayne Rooney mun líklega ekki spila á HM. Spilið hjá Englendingum er svo frábært að maður skilur það ekki, þeir eru að taka frábærar sendingar fyrir framan menn og nota sem fáar snertingar og ég held að um 1/3 af frammistöðu þeirra eru þessar frábæru sendingar og spil. Og þeir eru með einn besta varamanna bekkinn á mótinu með frábæra varnar -og miðjumenn.

Veikleikar: Ég sá það í leiknum gegn Jamaíku að eftir að hafa skorað eitt mark þá voru þeir svona að reyna halda þessu marki með því að pakka í vörn og spila á milli sín í vörninni en síðan klikkaði það oft og Jamaíku menn fengu fullt af færum útaf því en nýttu sér það ekki. Svo eru þeir með fáa sóknarmenn á bekknum en hinn 17 ára gamli Theo Walcott er örugglega sá eini sem verður á bekknum fyrir utan Jermaine Defoe.

England er í Evrópu og búa um 50 milljónir manna á Englandi. Þeir eru í 10 sæti á heimslista FIFA og nú bíðum við spennt eftir þeirra gengi á HMHlæjandi...

Spá Arnórs

1. ?
2. ?
3. England
4. ?
5. ?

Kveðja Arnór Sindri
ps. Ég mun tilkynna 4 og 5. sæti eftir að ég er búinn með topp 3 en það verður enginn fróðleikur um þau lið.

Spáin Mín Fyrir HM !Arnór Sindri Sölvason

Núna þegar akkurat vika er í HM 2006 í knattspyrnu ætla ég að sýna ykkur spánna mína fyrir HM og þá mun ég gera sérstakan fróðleik yfir þau lið sem ég held að verði í 1., 2. og 3. sæti og mun ég byrja að sýna ykkur fróðleik um liðið sem verður í 3. sæti af mínu mati og mun það koma á eftir þannig að límið augun við tölvuskjáinn næstu daga og skoðið fróðleik um topp 3 listann á HM af mínu mati og sjáumst þáHlæjandi...

Kveðja Arnór Sindri

Úrslit Úr Síðustu Könnun...Arnór Sindri Sölvason

Já nú er að fara ný könnun og úrslitin úr síðustu könnun er að fara líta dagsins ljósSaklaus... En það voru 11 manns sem svöruðu könnuninni og það voru flestir sem sögðu að þeir ættu ekki trampólín af því þau voru alltof dýr (3 manns) en það var verið að spyrja um hvort það væri komið með trampólín fyrir sumarið... svörin ,,Já, ég er búinn að eiga það lengi", ,,Nei, mig langar ekki í þannig" og ,,Veit ekki hvað það er" fengu öll 2 atkvæði... Og svo skiptu svörin ,,Já, fékk það fyrir nokkrum dögum" og ,,Nei, er að fara fá það" fengu 1 atkvæði hvor en ,,Já, en það er ónýtt fékk ekki neitt atkvæðiHlæjandi... Og þannig var nú það og nú er kominn spurning sem er um HM í knattspyrnuGlottandi...

Kveðja Arnór Sindri

Bless, Bless Skóli !Arnór Sindri Sölvason

Ííííííííííííííííííííííhhhaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa, sólinn er búinn og ég er kominn í sumarfrí og þetta var örugglega í síðasta skiptið sem ég fer þangað sem nemandi í Vallaskóli en ég er bara mjög kátur í dag og var að ná í nýtt lag sem er snilld og heitir það Baby, Please don't go með AC/DC og er það bara snilldSvalur... Mamma er að fara að skoða hús í Keflavík með pabba og er það allt hið  besta mál... Ég fer á æfingu á eftir og síðan er ekki æfing á mánudaginn því þá er annar í hvítasunnu og er það bara en betra... Ég er búinn að krúnuraka mig og þið sem vitið ekki hvað það er þá er það þegar maður er næstum því með skalla en er með smá broddaHlæjandi... En við sjáumst í þvílíku stuði...

Kveðja Arnór Sindri

Arnór Sindri Til Keflavíkur (Líklega Staðfest) !Arnór Sindri Sölvason

13 ára varnarmaður frá Selfossi, Arnór Sindri Sölvason var fyrir nokkrum dögum að gera ótakmarkaðann samning við Fótboltafélag KeflavíkurBrosandi... Hann er talinn vera efnilegasti leikmaðurinn í dag samkvæmt fjölskyldunni og eru þetta frábærar fréttir fyrir KeflvíkingaÞögull sem gröfin... Smá grín en í alvöru þá er ég að flytja þangað en það gerist ekki fyrr en í ágúst eða eitthvað en það getur náttúrulega allt gerst og verður maður bara að bíða... Djísús kræst hvað ég er búinn að vera skrifa lítið maður, ég bara veit ekki hvort ég er að koma eða fara af því að það er svo margt búið að gerast um daganaUllandi... Ég fór fyrir tveimur dögum til Þórsmarkar og gisti þar ásamt bekkjarfélögum mínum og var það ágætt en við fórum bara í fimm gönguferðir og þurftum við t.d. að labba 500 metra upp á fjall sem er bara f***ing brjálæði en það var allavega svalur lífrænt ræktaður potturHlæjandi... Og ég fór í golf með skólanum í morgun og náði ég að skjóta 125 m. langt með golfkylfunni sem er nokkuð gott, Atli í 7. AH æfir golf enda náði hann 180 m.Hissa... En við í Selfoss erum nýbyrjaðir að spila í nýju fótboltabúningunum og voru reyndar dáldið óþægilegir fyrst en það vandist sem betur ferUllandi... Ég var að spyrja síðan Hermann Hreiðarsson einnar spurninga á Fótbolta.NET og mun svar koma frá öllum sem spyrðu hann í dag á fótbolta.NET einhvern tímann fljótlega... Og nú eru bara einkunnarskil eftir hjá mér í skólanum og eftir það er ég kominn í SUMARFRÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ JEEEEYYYYYYSvalurGráðugurGlottandi... En ég held að það sé tími til kominn að hætta að blogga í svona 1 dag vonandi og við sjáumst...

Kveðja Arnór Sindri

Þvílíkir Dagar !Arnór Sindri Sölvason

Íííííííííhhaaaaaaaaaaa, ég er í þvílíkt góðu skapi eftir síðustaliðnu dagaHlæjandi... Í fyrsta lagi þá var ég og félagar mínir í Selfoss að keppa á móti Gróttu og var þessi leikur aldrei í hættu enda fór hann 7-4 fyrir okkur og átti ég fínan leikHlæjandi... Síðan fór ég á æfingu daginn eftir og var þar vítaspyrnukeppni og varð ég í 5. sæti og náði lengst af yngra árinu og var það bara mjög skemmtilegt... Og síðan urðu Liverpool F.A. Cup meistarar eftir að hafa unnið West Ham í vítaspyrnukeppni og var þetta ótrúlega dramatískur leikur þar sem að Liverpool var 3-2 undir þar til á loka mínútunni þar sem Steven Gerrard skoraði af 40 metra færi sem er nátturulega bara snilld bara einn tveir og BINGÓ MARADONASvalur... Og síðast en ekki síst þá átti systir mín 4 ára afmæli og voru margar tegundir af tertum í boði og lék ég við Jóa vin minn og spjallaði aðeins við frændfólk mitt og var þetta bara mjög fíntHlæjandi... Var að klára rosalega Dominos pizzu sem var þvílíkt góð marSvalur... Og á morgun fara mamma og pabbi til Bandaríkjanna á föndursýningu og eru þau hluti af henni og eru með fyritækið sitt ,,Föndur.IS" eða ,,DisaDesigns" á staðnum og mun ég líklega fá FIFA World Cup 2006 frá þeim þegar þau koma þann 24.maíUllandi... En nóg komið af spjalli og við sjáumst í dúndur stuði...

Kveðja Arnór Sindri

Er Í 2 klst. fríi !Arnór Sindri Sölvason

Ég er heppinn í dag því það var frí í smíði í skólanum og er ég í fríi í tvær heilar klukkustundirHissa... Ég er búinn að jafna mig á veikindunum og er bara hress en ég þarf að fara í skoðun hjá einhvers konar bæklunarlækni út af fótunum vegna aðgerðar sem ég fór í fyrir fjórum árum og þarf líklega að fá innlegg og allskonar dótaríÓákveðinn... En svo er ég alltaf að pæla og er ég aðeins að spá hvað hann Sven-Göran Eriksson landliðsþjálfari Englands er að spá í að velja Wayne Rooney sem er brotinn og Theo Walcott sem hefur ekkert spilað í úrvalsdeildinni og Eriksson hefur aldrei séð hann spila þannig að þetta er bara fáranlegt... En verð að faraHlæjandi...

Kveðja Arnór Sindri

Leikmaður nr. 5 hjá UMF. Selfoss !Arnór Sindri Sölvason

ÍíííííhhaaaaaaaSvalur... Rétt áðan var ég að máta búninga og galla og fékk ég meira að segja að velja númer og var ég svo heppinn að fá númer 5 og nafnið mitt verður aftan á búningnum, ligga ligga láiHlæjandi... Ég fór ekki í skólann í dag út af hálsbólgu og höfuðverks en er svona að lagast smátt og smátt og fékk núna að fara og máta búninga eins og ég var að segja... En verð núna að fara og sjáumst í stuði eins og vanalegaGlottandi...

Kveðja Arnór Sindri

Meiddur !Arnór Sindri Sölvason

Ég er að glíma við leiðinleg meiðsli hér heima eftir að ég var á trampólíninu á laugardaginn og þá gerðist eitthvað í hnénu og það vildi svo óheppilega til að það var leikur daginn eftir sem var í gær og ég var í byrjunarliðinu en spilaði aðeins í 10 mínútur en við unnum samt 4-3... Í dag hélt ég að ég hefði verið búinn að jafna mig en síðan fór ég á æfingu og undir lok æfingarinnar, tæklaði ég mótherja og þá heyrðist brak í hnénu og þá fór ég heim og þarf líklega að fara í einhverra skoðun og mun þá koma í ljós hvað ég verð lengi fjarverandiFýldur... En andlega er ég í góðu skapi og er bara að slaka á heima og við sjáumst aftur í dúndur stuðiBrosandi...

Kveðja Arnór Sindri

Æfingu Frestað Til 17:30 !Arnór Sindri Sölvason

Ég var að fara á æfingu núna klukkan 16:00 en þá var mér bara sagt að henni yrði frestað til klukkan 17:30 rétt eins og leiknum í gær gegn Gróttu nema honum var frestað alveg vegna mikils roks og var hætta á að mörkin myndu detta á einhvern en honum var frestað þegar það var kominn hálfleikur hjá A-liðinuÓákveðinn... Jabb svona var það og við sjáumst í svaka stuði...

Kveðja Arnór Sindri

Leit

Auglýsing

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...