Auðvitað Fer Það Í Keppnina...Arnór Sindri Sölvason
Jabb, lagið sem ég samdi sem er hérna fyrir neðan (fréttinn sem er á eftir) verður fulltrúa verkefni 7. EKG sem er bara snilld, og eini heimalærdómurinn fyrir morgundaginn er að læra lagið og textann sem er alveg frábært þannig að ég þarf ekki að læra neittKveðja Arnór Sindri
Rosalegt Lag !Arnór Sindri Sölvason
Ég var að semja texta við fræga lagið frá 80's ,,Wake me up before you go-go" og var þetta fyrir verkefnið sem allir í 7 og 8 bekk gera og áttu allir að vera með hugmynd til að gera fyrir keppnina og og held ég að það séu tvær hugmyndir komnar í bekknum. Annað var að gera myndband og annað var að gera lag og ég búinn að vera að því og hérna er textinn við lagið og heitir það ,,Stoppaðu, Ekki Reykja" og er hann hér fyrir neðanTexti:
Arnór Sindri SölvasonLag: Wham,,Wake me up before you go go”,,Út með smók (4x)
Ég er með fiðring í höndunum
sem er að reyn' að fá sér sígó
en ég streytist bara á móti
og ég fæ mér aldrei níkó
Og ég var alveg rosa glaður er ég sigraðist á þessu
ekki sígó meira bara tært og hreint hollræði...
...alveg rosa glaður er ég sigraðist á þessu
ekki sígó meira bara tært og hreint hollræði
Stoppaðu, ekki reykja
þá fer heilinn í þér bar' að steikjast
ertu dö eða ertu tregur
Hætt' að reykja nú á stundinni
Stoppaðu, ekki reykja
þá fer heilinn í þér bar' að steikjast
ertu dö eða ertu tregur
Hætt' að reykja nú á stundinni
Já nú á stundinni hiiiiiiiii
(Instrumental Sóló)
Og ég var alveg rosa glaður er ég sigraðist á þessu
ekki sígó meira bara tært og hreint hollræði...
...alveg rosa glaður er ég sigraðist á þessu
ekki sígó meira bara tært og hreint hollræði
Stoppaðu, ekki reykja
þá fer heilinn í þér bar' að steikjast
ertu dö eða ertu tregur
Hætt' að reykja nú á stundinni
Stoppaðu, ekki reykja
þá fer heilinn í þér bar' að steikjast
ertu dö eða ertu tregur
Hætt' að reykja nú á stundinni
Já nú á stundinni hiiiiiiiii
Je je jeeeeeeeeeeee "
Lagið hefur verið stytt í mínútu og er miklu styttra en ,, Wake me up before you go-go " og sjáumst í stuði...
Kveðja Arnór Sindri
ps. Komnir yfir 1000 gestir frá upphafi
Endalausar Pælingar !Arnór Sindri Sölvason
Ég er allur í pælingunum og var að pæla í af hverju Hestöfl heita hestöfl... Þetta er örugglega eitthvað tengt hestum því á ensku þýðir það Horsepower og Horse þýðir hestur... Ég bara hreinlega fatta þetta ekki og ef einhver hefur svör við þessu þá er bara um að gera að svara í athugasemdum hérna
... Ég var búinn að vera pæla eitthvað annað líka en bara búinn að gleyma því
... En í dag vorum við í skólanum að gera verkefni sem er að hafa hugmyndir um að senda inn í keppnina ,, Reyklaus bekkur" og hafði ég hugmyndina sem ég er að vinna í og það er að semja lag og heitir það ,, Stoppaðu, ekki reykja " og er textinn eftir mig og er lagið eftir strákanna í ,,Wham " að ég örugglega held og er það ,, Wake me up before you go-go " og mun ég sýna ykkur textann þegar hann er tilbúinn... Og núna er að fara byrja leikur Villareal og Arsenal í Meistaradeild Evrópu og er þetta í undanúrslitunum og þetta er seinni leikurinn og Arsenal vann fyrri leikinn 1-0 og eru því í góðri stöðu
... Við bara sjáumst hress og kát og veriði sæl...
Kveðja Arnór Sindri
Steven Gerrard Bara Leikmaður Ársins !Arnór Sindri Sölvason
Íííííhhaaaa, Steven Gerrard sem er fyrirliði Liverpool í fótbolta var valinn í kvöld leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni
... Það er bara allt að gerast hjá Liverpool þessa dagana með því að sigra Liverpool og núna Gerrard bestur öss segi ég bara
... En afa og Helga náðu að setja heita pottinn niður í sumarbústaðnum í dag sem er bara tær snilld og núna getur aldeilis farið að slaka á maður
... Svo var ég í fermingu hjá Daða vini mínum og höfum við ekki hist síðan seinasta sumar eða eitthvað bara ,,Long time no Seen" eins og sagt er í Ameríku
... Heyrðu síðan held ég að ég sé eitthvað skrítinn þessa daganna því að alla helgina er ég bara búinn að vera að læra á fullu, þegar ég var að fara að sofa á föstudaginn þá bara hafði ég bara töskuna með mér og byrjaði að læra og það í STÆRÐFRÆÐI
... Og ég er búinn að vera læra undir próf sem er á morgun og er ég bara í góðum málum með það og bara ,,Farvel" eins og sagt er í Danmörku þar sem enginn fjöll eru (vá er ég orðinn nördi eða þannig)
...
Kveðja Arnór Sindri
Yess Liverpool Í Úrslit !Arnór Sindri Sölvason
Jabb, Liverpool unnu Englandsmeistara Chelsea að velli í dag með tveimur mörkum gegn einu og skoruðu John Arne Riise og Luis Garcia mörkin fyrir Liverpool og Didier Drogba minnkaði síðan muninn fyrir Chelsea þannig að Liverpool er komið í úrslit FA bikarsins og mætir annað hvort Middlesbrough eða West HamKveðja Arnór Sindri
Kominn Í Helgarfrí !Arnór Sindri Sölvason
Ég er kominn í helgarfrí og er í stuði maður
... Ég var í skólanum í dag og var í Heimilisfræði þar sem við bökuðum eitthvað brauð og svo er ég að fara læra undir próf fyrir mánudaginn í Samfélagsfræði og líka gera 4 blaðsíður í Satúrnus sem er stærðfræðibók... Ég er að horfa á American Idol á ITV 4 og eru úrslitin að fara koma í ljós og svo er ég að fara kíkja aðeins í Stekkholtið til ömmu og afa, Helga og Palla
... Og síðan á morgun á að prufu "potta" pottinn sem er kominn í sumarbústaðinn og verður það örugglega alveg rosalegt maður
... En ég ætla að fara að kíkja í Stekkholtið þannig að við verðum í netbandi
...
Kveðja Arnór Sindri
Fékk Trampólín !Arnór Sindri Sölvason
Yess, við systkynin fengum alveg rosalegt trampólín í sumargjöf frá mömmu og pabba og erum við búin að vera að hoppa á því allann daginnKveðja Arnór Sindri
Gleðilegt Sumar !Arnór Sindri Sölvason
Í dag er Sumardagurinn Fyrsti og er sumar veður hér á Selfossi, sól og blíða og í því tilefni óska ég ykkur gleðilegt sumarKveðja Arnór Sindri
Töpuðum...Arnór Sindri Sölvason
Ég var að keppa í dag á móti Breiðarblik en þetta var fyrsti leikurinn sem ég byrja á bekknum
... Það sérstaka við leikinn var að við gleymdum búningunum og þurftum að spila bara í því sem við vorum í en bara í fyrri hálfleik... Óskar pabbi hans Ingva kom með búningana og ég þurfti að vera númer 16 og kom inná í seinni hálfleik... Þetta var hrillilegur völlur og var þetta möl... Við töpuðum 4-2 en við vorum í fyrri hálfleik betri en bara nýttum ekki færin og skoruðum fyrsta markið... Við fengum klaufamörk á okkur eins og þegar Jón Freyr missti boltann undir fótinn sem var hrein óheppni en Ármann skoraði annað markið okkar með því að skjóta nærrum því frá miðju og yfir markvörðinn
... Og þannig fór nú það, ég er meiddur í öklanum eftir leikinn því þeir voru dálitlir tuddar og tveir þeirra reyndu að sparka mig niður
... En við bara sjáumst...
Kveðja Arnór Sindri
PSP og Nintendo Sameinað !Arnór Sindri Sölvason
Jabb, alveg merkileg uppfinning sem Helgi frændi er búinn að fatta en hann á PSP-tölvu (PlayStation Portable) og nú er hann kominn með 900 NINTENDO LEIKI og þar á meðal einn af upphálds leikjunum sem ég lék mér í þegar ég var örugglega 4 ára, þvílíkar minningar, ég fer næstum því að grátaKveðja Arnór Sindri
Tölvutími !Arnór Sindri Sölvason
| Halló ég er hérna í tölvutíma í skólanum... Þetta er búinn að vera ágætur tími Kveðja Arnór Sindri |
Aaahhh Sund !Arnór Sindri Sölvason
Í dag var ég í sundi á Stokkseyri og er bara hin fínasta sundlaug þar, ég hélt að hún væri verri en síðan var bara rennibraut, góðir pottar, karfa og körfubolti og síðan var bara þjónusta þarna, mar fékk þarna djús og læti
... Ég sé að eins og er eru níu manns búnir að svara könnuninni sem er bara gott
... Það er snilldar veður hér á Selfossi enda ætlum við hérna að grilla mar, það er mikil sól og 10 stiga hiti, ég segi bara VÁ![]()
... Ég held að ég ætli að fara út og gera eitthvað, kannski slaka á í hengirúminu hver veit
... Við sjáumst í stuði
...
Kveðja Arnór Sindri
Síðan opnuð formlega !Arnór Sindri Sölvason
Já, nú lýsi ég þessari síðu opnaKveðja Arnór Sindri
Þreyttur...Arnór Sindri Sölvason
Já ég er orðinn dáldið þreyttur núna á Páskakvöldi og klukkan er orðin rúmlega tólf... Ég var að rústa mömmu gjörsamlega í ,,Ólsen-Ólsen" og var þetta upp í 12 og endaði það 12 - 4 fyrir mérKv. Arnór Sindri
Gleðilega Páska !Arnór Sindri Sölvason
Ííííííhhaaaaaaa það eru komnir Páskar og ég er búinn að borða eitt páskaegg númer 3 sem ég fékk frá ömmu minni og afa í StekkholtiKveðja Arnór Sindri
Óformlegt Blogg !Arnór Sindri Sölvason
Eins og er þá er ég ekki búinn að segja neinum frá þessari síðu en ég mun gera það eftir PáskanaKv. Arnór Sindri
